Erlent

Vísindakirkjan sektuð fyrir svik

Óli Tynes skrifar
Tom Cruise er ákafur áhangandi Vísindakirkjunnar.
Tom Cruise er ákafur áhangandi Vísindakirkjunnar.

Vísindakirkjan í Frakklandi hefur verið sektuð fyrir fjársvik. Dómstóllinn féllst þó ekki á þá kröfu saksóknarans að banna kirkjuna í landinu.

Það voru nokkur fyrrverandi safnaðarbörn sem höfðuðu mál gegn Vísindakirkjunni og sökuðu hana um að hafa af sér fé á fölskum forsendum.

Dómstóllinn dæmdi þeim í vil og voru tvær kirkjudeildir sektaðar auk nokkurra forystumanna persónulega.

Fjölmargir frægir einstaklingar tilheyra Vísindakirkjunni, ekki síst í Hollywood. Meðal þeirra eru til Dæmis Tom Cruise og John Travolta.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×