Viðskipti innlent

Gengi Marel Food Systems hækkar um 1,3 prósent

Vélar frá Marel Food Systems skoðaðar.
Vélar frá Marel Food Systems skoðaðar. Mynd/GVA

Gengi hlutabréfa í Marel Food Systems hefur hækkað um 1,3 prósent í Kauphöllinni í dag. Á eftir fylgja bréf Færeyjabanka, sem hefur hækkað um 1,01, prósent, og bréf Bakkavarar, en gengi þeirra hefur hækkað um 0,53 prósent.

Á sama tíma hefur gengi bréfa Straums lækkað um 1,1 prósent og Össurar um 0,58 prósent.

Gamla Úrvalsvísitalan stendur óbreytt frá í gær, eða í 271 stigum. Nýja vísitalan stendur í 849 stigum.














Fleiri fréttir

Sjá meira


×