Innlent

Búið að handtaka íslensku konuna í Bandaríkjunum

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Linda Björk Magnúsdóttir, konan sem lögreglan í Bandaríkjunum leitaði í nótt, náðist í morgun og er nú í haldi lögreglunnar í Clinton sýslu. Konan slapp úr varðhaldi lögreglu á meðan hún beið þess að vera leidd fyrir dómara.

Konan var handtekin í Bandaríkjunum fyrir að vera ólöglegur innflytjandi en hún var að koma yfir landamærin frá Kanada þegar hún var stöðvuð. Staðarblaðið í Plattsburgh segir að svo virðist vera sem konan hafi beðið um að fara á salernið og látið sig hverfa þaðan.


Tengdar fréttir

Íslensk kona eftirlýst í Bandaríkjunum

Lögregla í borginni Plattsburgh í New York ríki í Bandaríkjunum leitaði í nótt að Lindu Björk Magnúsdóttur, íslenskri konu sem slapp úr varðhaldi lögreglu á meðan hún beið þess að vera leidd fyrir dómara. Lögreglumenn úr borginni og frá alríkislögreglunni FBI hafa leitað að konunni sem er fjörutíu og tveggja ára gömul.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×