Fótbolti

Catania vildi fá Birki

Ítalska knattspyrnuliðið Catania vildi fá Birki Bjarnason leikmann norska liðsins Viking frá Stavangri lánaðan með möguleika á að kaupa hann.

Birkir, sem er tvítugur að aldri, framlengdi fyrir skömmu samning sinn við norska liðið um 3 ár. Hann hefur átt fast sæti í yngri landsliðum Íslands og spilað 35 leiki.

Catania er í 12. sæti Ítölsku úrvalsdeildarinnar. Ólafur Garðarsson umboðsmaður Birkis sagði í samtali við fréttastofuna í morgun að norska liðið hefði hafnað beiðni Catania.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×