Nýtt dómarapar á Makedónía-Ísland vegna mútumála Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 17. mars 2009 10:40 Bernd Ullrich handboltadómari. Nordic Photos / Bongarts
Evrópska handknattleikssambandið hefur skipt um dómara á leik Makedóníu og Íslands í undankeppni EM 2010 sem fer fram annað kvöld ytra. Til stóð að þýska dómaraparið Bernd Ullrich og Frank Lemme myndu dæma leikinn en þeir hafa flækst í mútumál sem gæti bundið enda á feril þeirra. Þeir áttu að dæma leik í þýsku úrvalsdeildinni um helgina en hafa verið settir í bann af þýska handknattleikssambandinu á meðan rannsókn stendur yfir. Forráðamenn spænska félagsins Valladolid hafa sakað þýsku dómarana um að hafa þegið mútugreiðslu til að hagræða úrslitum leik liðsins gegn Medvedi Chekov í úrslitum Evrópukeppni bikarhafa fyrir þremur árum. Medvedi varð meistari. Ullrich og Lemme hafa greint frá því í samtali við þýska fjölmiðla að þeim hafi oft verið boðnar mútur á ferlinum. „Við höfum annað slagið fengið ansi tvísýn tilboð - eitthvað í líkingu við að ef við dæmum rétt þá munum við ekki sjá eftir því," sagði Ullrich. „Ég man ekki lengur hvort það hafi gerst í tíu eða tuttugu skipti." Þeir harðneita þó því að hafa nokkru sinni þegið mútugreiðslu eða stundað óheiðarlega dómgæslu. Þeim hafi verið boðin greiðsla upp á 50 þúsund dollara fyrir að dæma Medvedi Chekov í hag í áðurnefndum úrslitaleik en ekki þegið það. Hins vegar neita þeir að gefa upp hver reyndi að múta þeim, meðal annars af ótta við að viðkomandi gæti reynt að myrða þá. Annað þýskt dómarapar hefur verið sett á leik Makedóníu og Íslands. Tvíburarnir Bernd og Reiner Mether munu nú dæma leikinn en þeir þykja með allra bestu dómurum heims.
Handbolti Mest lesið Bein útsending: Hildur hætti eftir 30. hring og nú eru níu eftir Sport Rakel María endaði upp á spítala: „Ég á bara ótrúlega erfitt“ Sport Liverpool tyllti sér á toppinn Enski boltinn Skiptar skoðanir á nýju merki Njarðvíkur Körfubolti Besti dómarinn í deildinni á von á sínu þriðja barni Fótbolti FIFA setur Viðar Örn í sex mánaða bann Fótbolti Stones tryggði City sigur í uppbótatíma Enski boltinn Albert fór meiddur af velli en liðið fór á kostum Fótbolti Hættir að elska Jürgen Klopp: „Hefur þú gleymt öllu?“ Fótbolti Sexfaldur Ólympíugullverðlaunahafi dauðvona Sport Fleiri fréttir Í beinni: Haukar - Cocks | Hanar í heimsókn 23 íslensk mörk þegar Magdeburg vann Leipzig Strákarnir hans Gumma Gumm með fimmta sigurinn í röð Dana Björg markahæst í sigurleik Komin aftur á völlinn þremur mánuðum eftir barnsburð Elvar skoraði sex þegar Melsungen fór á toppinn Grótta náði í stig gegn meisturum FH Ýmir dýrmætur í fyrsta sigrinum Fjölnir nálægt því sem Porto tókst ekki en Valskonur á siglingu Guðjón og Elliði fögnuðu áfram eftir Íslandsför Sjáðu ótrúlegt mark Sigvalda í Meistaradeildinni KA og ÍR fögnuðu eftir spennu Orri magnaður í frábærum sigri Kristján rifbeinsbrotnaði: „Fannst þetta klárt rautt spjald“ Aron aftur til Veszprém eftir stormasaman viðskilnað Íslensk upprisa dugði ekki til og Bjarki fagnaði gegn löndum sínum Uppgjörið: Afturelding - ÍBV 38-27 | Mosfellingar á toppinn með stórsigri Sandra í landsliðinu þremur mánuðum eftir barnsburð Aron Dagur í Kópavoginn Allt jafnt á Ásvöllum Selfoss upp fyrir Stjörnuna Slæmt gengi Magdeburg í Evrópu heldur áfram Óaðfinnanleg Elín Klara skaut Haukum upp í þriðja sætið Uppgjörið: Fram - ÍBV 29-20 | Öruggur heimasigur Landsliðshetjan í áfalli: Ég skelf öll „Stór partur af mér sem persónu“ „Við vorum bara niðurlægðir“ „Æðislegt að sjá svona marga Íslendinga sem halda með okkur“ Þorsteinn Leó: Ég sá að stúkan var hálf blá Óskar Bjarni: Bara fúll að hafa ekki unnið Sjá meira