Fótbolti

Eto´o vill þann eyrnastóra

AFP

Framherjinn Samuel Eto´o hjá Barcelona segist vonast til að sjá öll spænsku liðin fara áfram í Evrópukeppnunum í ár.

Barcelona tekur á móti Lyon í kvöld þar sem liðinu nægir markalaust jafntefli til að komast í 8-liða úrslitin eftir 1-1 jafntefli þeirra í Frakklandi í fyrri leiknum.

"Ég vil sjá öll spænsku liðin fara eins langt og hægt er í keppninni, en þegar allt er talið vil ég að Barcelona lyfti bikarnum með stóru eyrun," sagði Eto´o í samtali við Sport á Spáni og vísaði í Evrópubikarinn eftirsótta.

"Ég veit að Real Madrid viðurkennir ekki að við séum besta liðið í augnablikinu en við erum á góðri leið með að vinna þrjá bikara svo þeir neyðast til þess," sagði Eto´o






Fleiri fréttir

Sjá meira


×