Fótbolti

De Rossi: Mun aldrei yfirgefa Roma

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Daniele De Rossi.
Daniele De Rossi.

Miðjumaðurinn Daniele De Rossi hjá Roma er undir smásjá margra liða sem vilja lokka hann frá Roma þar sem hlutirnir eru ekki að ganga upp þessa dagana.

De Rossi er ekki ólíkur félaga sínum, Francesco Totti, í því að þykja vænt um félagið.

„Ég, rétt eins og allir í liðinu, er ósáttur við þetta gengi. Ég get ekki snúið þessu gengi við einn. Við getum samt bara batnað úr því sem komið er," sagði De Rossi.

„Ég hef alltaf sagt að ég vilji vera hjá Roma. Félagið er hluti af mér sama hvernig gengur. Ég vil ekki fara frá þessu félagi."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×