Formúla 1

Honda hafnar 1.6 miljarða tilboði

Allt virðist upp í loft varðandi mögulega sölu á búnaði Honda liðsins, sem verður lagt niður 1. mars ef engin kaupandi finnst. Yfirmaður Honda í Japan sagði eftir stjórnarfund að ekkert alvöru kauptilboð hefði borist.

Takeo Fukui forstjóri Honda segir að fyrirtækið væri í vanda að finna kaupanda. Samt sem áður hefur Bernie Ecclestone unnið að því hörðum höndum að finna kaupanda, en segir Honda neita hjálpinni sem hann hefur boðið. Á móti segir Fukui söluferlið hafa reynst þeim snúið.

Ecclestone segir að Nick Fry og Ross Brawn hafi boðið Honda 100 miljónir punda fyrir búnað liðsins, en því hafi verið hafnað. Mercedes er tilbúið að selja nýju liði vélar, en nú virðist hafa fokið í flest skjól, nema umsögn Fukui sé til þess gerð að fá hærra tilboð.

Richard Branson eigandi Virgin flugfélagsins hefur einnig áhuga á liðinu og Ecclestone hefur haft milligöngu um hans áhuga en Ecclestone segir málið nú í höndum Honda. Mercedes menn segjast ekki geta beðið mikið lengur eftir ákvörðun.

Sjá nánar um Honda málið








Fleiri fréttir

Sjá meira


×