Handbolti

Kristinn kominn í undanúrslitin í Noregi

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Kristinn Björgúlfsson.
Kristinn Björgúlfsson.

Kristinn Björgúlfsson og félagar hans í Runar eru komnir áfram í undanúrslit úrslitakeppni norsku úrvalsdeildarinnar í handbolta.

Úrslitin ráðast nú um helgina en bæði undanúrslit og úrslitin fara fram í Skien um helgina.

Undanúrslitin fara fram á morgun. Runar mætir þá Haslum annars vegar og hins vegar eigast Stord og Fyllingen við.

Úrslitaleikurinn fer svo fram á laugardaginn.

Núverandi meistarar, Elverum með Sigurð Ara Stefánsson innanborðs, féllu úr leik fyrir Haslum í fjórðungsúrslitum úrslitakeppninnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×