Golf

Tiger með forystu í Ástralíu

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Tiger kíkti aðeins í sandkassann.
Tiger kíkti aðeins í sandkassann.

Tiger Woods er með þriggja högga forskot á JBWere Masters-mótinu í Ástralíu eftir tvo hringi.

Tiger var jafn örðum í efsta sæti eftir fyrsta hringinn sem hann fór á 66 höggum. Hann fór seinni hringinn á 68 höggum og er 10 undir pari samtals.

Þrír kylfingar eru jafnir í öðru sæti einum þremur höggum á eftir Tiger.

Rúmlega 24 þúsund manns mættu á golfvöllinn til þess að fylgjast með Tiger spila.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×