Fótbolti

Hleb vill koma til Bayern

Hleb hefur ekki átt fast sæti í liði Barcelona
Hleb hefur ekki átt fast sæti í liði Barcelona Nordic Photos/Getty Images

Uli Hoeness, framkvæmdastjóri Bayern Munchen, segir að Alexander Hleb hjá Barcelona hafi mikinn hug á að ganga í raðir félagsins frá Barcelona í sumar.

Bayern hefur mikið verið orðað við brasilíska miðjumanninn Diego hjá Bremen en óvíst er talið að sú viðskipti nái fram að ganga. Þá lifir orðrómurinn um að Franck Ribery fari frá Bayern enn góðu lífi.

"Ég veit að Diego vill koma til Bayern en ef við missum af honum, getum við fengið Alexander Hleb frá Barcelona. Við getum fengið hann ef við viljum," sagði Hoeness í samtali við þýska fjölmiðla.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×