Handbolti

Lemgo tapaði í Danmörku

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Logi Geirsson í leik með íslenska landsliðinu.
Logi Geirsson í leik með íslenska landsliðinu. Mynd/Stefán
Logi Geirsson og félagar í Lemgo töpuðu fyrir Bjerringbro-Silkeborg í fyrri leik liðanna í 16-liða úrslitum EHF-bikarkeppninnar í dag.

Danska liðið vann þriggja marka sigur, 26-23, eftir að staðan var jöfn í hálfleik, 12-12. Logi Geirsson skoraði eitt mark fyrir Lemgo.

Þá vann Gummersbach sigur á Magdeburg er liðin mættust einnig í EHF-keppninni í dag, 26-24. Róbert Gunnarsson skoraði fjögur mörk fyrir Gummersbach sem var með tveggja marka forystu í hálfleik, 12-10.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×