Innlent

Verið að traðka á stjórnarskránni í boði Framsóknar

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, varaformaður Sjálfstæðisflokksins, gagnrýndi Framsóknarflokkinn í kvöld.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, varaformaður Sjálfstæðisflokksins, gagnrýndi Framsóknarflokkinn í kvöld. MYND/GVA
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, varaformaður Sjálfstæðisflokksins, sagði í umræðum á Alþingi í kvöld að ekki væri hægt að tala um málþóf þegar stjórnarskráin væri til umræðu. Hún sagði að ekki einungis aðgerðarleysi ríkisstjórnarinnar væri í boði Framsóknarflokksins heldur væri einnig verið að traðka á stjórnarskránni í boði flokksins.

Fjölmargir þingmenn Sjálfstæðisflokksins ræddu fundarstjórn forseta á þingfundinum þegar stjórnarskrárfrumvarp ríkisstjórnarinn var til umræðu. Þeir kröfðu Einar Már Sigurðarson, varaforseta sem stýrði þingfundinum, um svör hvenær fundinum lyki og hvort von væri á enn einum næturfundinum.

Arnbjörg Sveinsdóttir, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, sagði ótækt að halda áfram með þessum hætti. Hún kallaði eftir því að flutningsmenn frumvarpsins yrðu viðstaddir umræðuna. Þetta eru ámælisverð vinnubrögð, sagði Jón Gunnarsson flokksbróður Arnbjargar. Hann sagði að ekkert tillit væri tekið til þeirra óska og spurninga sem fram hefðu komið.

Jón Magnússon, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sagði að þjóðin ætti að geta fylgst með umræðum um stjórnarskrána og því væri eðlilegt að þingfundi yrði ekki framhaldið mikið lengur enn til klukkan 11 í kvöld.

Að lokum sagðist Einar Már hafa tekið tillit til sjónarmiða þingmannanna. Hann sagði jafnframt að engin ákvörðun hafi verið tekin önnur en að halda þingfundi áfram.




Tengdar fréttir

Boða langar umræður um stjórnarskrárfrumvarpið

Sjálfstæðismenn boða langar umræður um stjórnarskrárfrumvarp forsætisráðherra en þeir vilja að fallið verði frá öllum greinum frumvarpsins nema einni. Þeir segja að verið sé að brjóta hálfrar aldar hefð um að afgreiða breytingar á stjórnarskrá í sátt allra flokka á þingi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×