Handbolti

Ólafur með átta mörk

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Ólafur Stefánsson í leik með Ciudad Real.
Ólafur Stefánsson í leik með Ciudad Real. Mynd/Vilhelm

Ólafur Stefánsson var markahæstur er Ciudad Real vann sigur á Aragon, 25-23, í spænsku úrvalsdeildinni í handbolta í gær.

Ólafur skoraði átta mörk í leiknum, þar af fimm úr víti. Aragon var með yfirhöndina í hálfleik, 12-11.

Ciudad er enn með tveggja stiga forystu á Barcelona sem vann einnig sinn leik í vikunni. Ciudad er með 36 stig en Portland er í þriðja sæti með 32. Þessi þrjú lið eru í sérflokki í deildinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×