Fótbolti

AIK tvöfaldur sænskur meistari

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Ragnar Sigurðsson, leikmaður IFK og íslenska landsliðsins.
Ragnar Sigurðsson, leikmaður IFK og íslenska landsliðsins. Mynd/Arnþór
AIK vann í dag 2-0 sigur á IFK Gautaborg í úrslitaleik sænsku bikarkeppninnar og vann því tvöfalt í ár.

Ragnar Sigurðsson, Hjálmar Jónsson og Theodór Elmar Bjarnason léku allir allan leikinn fyrir Gautaborg í dag.

Gautaborg varð einnig að sætta sig við annað sæti í deildinni eftir að liðið tapaði fyrir AIK í lokaumferðinni um síðustu helgi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×