Körfubolti

Verða Haukastúlkur Íslandsmeistarar í kvöld?

Hjalti Þór Hreinsson skrifar
Sigrún Ámundadóttir leikmaður KR og Haukastúlkan Sara Pálmadóttir.
Sigrún Ámundadóttir leikmaður KR og Haukastúlkan Sara Pálmadóttir. Mynd/Anton

Haukar geta tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn í Iceland-Express deild kvenna með sigri á KR í kvöld.

Deildarmeistararnir hafa unnið tvo leiki gegn einum í úrslitaeinvíginu gegn KR. Fjórði leikurinn fer fram í Vesturbænum í kvöld klukkan 19.15 og verður hann í beinni textalýsingu hér á Vísi.

KR vann fyrsta leikinn 52-61 á útivelli en Haukar unnu svo tvo leiki í röð og leiða því einvígið 2-1. Síðasti leikur liðanna fór í framlengingu og má búast við baráttu upp á líf og dauða í kvöld.

Vinni Haukar í kvöld verður það þriðji titill þeirra á fjórum árum.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×