Viðskipti innlent

Töluverður áhugi á Versacold ytra

Gylfi Sigfússon
Gylfi Sigfússon
„Nú erum við staddir í öðrum fasa söluferlisins og það eru sjö hugsanlegir kaupendur eftir,“ segir Gylfi Sigfússon, forstjóri Eimskips, um söluna á kanadíska félaginu Versacold-Atlas.

Eimskipafélagið hefur átt í nokkrum erfiðleikum og glímt við þungar skuldir.

„Við fáum meira en sem nemur skuldunum við söluna á félaginu og náum því einnig að lækka skuldir móðurfélagsins. Það þýðir ekki að við séum lausir allra mála, en það lagar stöðuna hjá okkur mikið, hverfi helmingur skuldanna og við losnum við næstum allar erlendar skuldir,“ segir Gylfi.

Hann segir að um þrjátíu aðilar hafi í upphafi sýnt áhuga á að kaupa Versacold. Þá hefði verið farið yfir hugsanlega kaupendur ásamt tveimur erlendum bönkum.

Þeir sjö sem eru eftir munu gera annað tilboð í fyrirtækið 15. janúar, en hafa fengið sérstaka kynningu á fyrirtækinu í millitíðinni. Versacold-Atlas er stærsta fyrirtæki heims á sínu sviði og rekur um 130 frystigeymslur í nokkrum heimsálfum.

Eftir því sem Markaðurinn kemst næst gætu fengist á milli 700 og 900 milljónir evra fyrir félagið, eða um 116 til 150 milljarðar króna miðað við núverandi gengi Seðlabankans. Þetta fæst ekki staðfest. Fram kom í Markaðnum í október 2007 að heildarkaupverð Versacold og Atlas, sem síðar voru sameinuð, hefði verið um 1.800 milljónir Kanadadala, eða um 112 milljarðar króna, miðað við gengið þá. Síðan hefur nokkuð af eignum verið selt, líklega fyrir um 500 milljónir Kanadadala. - ikh





Fleiri fréttir

Sjá meira


×