Formúla 1

Liuzzi tekur við sæti Fisichella

Ítalinn Viantonio Liuzzi tekur sæti Giancarlo Fisichella hjá Force India.
Ítalinn Viantonio Liuzzi tekur sæti Giancarlo Fisichella hjá Force India.

Ítalinn Viantonuo Liuzzi var í morgun staðfestur sem ökumaður Force India í stað Giancarlo Fisichella sem var leystur undan samningi svo hann gæti ekið með Ferrari í síðustu fimm mótum ársins. Liuzzi hefur verið varaökumaður liðsins, en var áður hjá Torro Rosso.

Liuzzi hefur ekki keppt síðan í árslok 2007 og hefur takmarkað reynslu á Force India bílnum vegna æfingabanns sem er í gildi. Hann hefur ekki ekið bílnum síðan í nóvember.

"Ég get ekki beðið eftir því að komast um borð í Formúlu 1 bíl og þá sérstaklega á heimavelli mínum á Monza. Ég er mjög þakklátur Vijay Mallay, eiganda liðsins að gefa mér þetta tækifæri. Það sakar ekki að Force India bíllinn er öflugur og mig hungrar í að sýna hvað í mér býr. ", sagði Liuzzi í dag.

Landi hans Fischella sem yfirgaf Force India liðið ekur með Ferrari á Monza um næstu helgi í stað Luca Badoer, sem var staðgengill Felipe Massa. Fisichella náði öðru sæti á Spa brautinni fyrir viku síðan og Ferrari tók hann upp á arma sína.

Ítarlega verður fjallað um Liuzzi í þættinum Rásmarkið á Stöð 2 Sport á fimmtudaginn.

Sjá allt um Liuzzi












Fleiri fréttir

Sjá meira


×