Innlent

Tvær og hálf milljón á mann hjá Sjálfstæðisflokknum

MYND/Pjetur

Þeim tilmælum hefur verið beint til þáttakenda í prófkjörum Sjálfstæðisflokknum um allt land að þeir leggi að hámarki 2,5 milljónir króna í baráttuna. Þetta var ákveðið á sameiginlegum fundi framkvæmdastjóra Sjálfstæðisflokksins, formanna kjördæmisráða og formanna kjörnefnda í síðustu viku þar sem fjallað var um takmarkanir á kostnaði frambjóðenda í fyrirhuguðum prófkjörum flokksins.

Kjördæmisráð Sjálfstæðisflokksins hafa í öllum kjördæmum ákveðið að fram fari prófkjör til að ákvarða uppstillingu á framboðslistum flokksins í komandi kosningum. Prófkjörin fara fram 14. mars nk., en í Reykjavík verður einnig hægt að kjósa þann 13. mars og í Norðvesturkjördæmi fer fram prófkjör 21. mars.

„Með lögum um fjármál stjórnmálaflokka og samtaka, sem sett voru árið 2006, er frambjóðendum í prófkjöri settar ákveðnar takmarkanir hvað varðar fjárútlát í tengslum við prófkjörsbaráttu. Lögin gera ráð fyrir að hámarksprófkjörskostnaður frambjóðenda sé mismunandi eftir fólksfjölda í kjördæmum og er hann nú u.þ.b. 4 - 8 milljónir fyrir hvern frambjóðanda í kosningabaráttu eftir kjördæmum," segir í tilkynningu frá flokknum.

Á fundinum í síðustu viku var eftirfarandi ályktun samþykkt:

„Augu almennings beinast að stjórnmálahreyfingum um þessar mundir og mikilvægt að frambjóðendur í prófkjörum á vegum flokksins gangi fram með góðu fordæmi. Af þeim sökum er þeim tilmælum beint til frambjóðenda að þeir sýni hófsemi og aðhald í komandi kosningabaráttu og að þeir leggi að hámarki 2,5 milljónir hver í baráttuna. Sú upphæð er þrefalt lægri en leyfilegt hámark í fjölmennasta kjördæminu samkvæmt lögunum.

Til að koma til móts við frambjóðendur mun flokkurinn opna heimasíðu þar sem hægt verður að nálgast upplýsingar um alla frambjóðendur í prófkjörum flokksins. Hvert kjördæmisráðu mun síðan gefa út blað þar sem frambjóðendur geta kynnt sig og sín áherslumál. Jafnframt munu kjördæmisráðin halda opna fundi þar sem frambjóðendum gefst tækifæri á að kynna sig og sín málefni."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×