Fótbolti

Podolski vill spila við hlið Totti

NordicPhotos/GettyImages

Þýski landsliðsmaðurinn Lukas Podolski hjá Bayern Munchen segist vel geta hugsað sér að spila við hlið Francesco Totti í framlínu Roma á Ítalíu.

Roma er eitt þeirra félaga sem hafa verið orðuð við framherjann, sem talið er víst að eigi sér litla framtíð hjá Bayern.

"Roma hefur á að skipa frábærum leikmönnum eins og Daniele De Rossi og Francesco Totti - og svo er liðið í Meistaradeildinni. Luca Toni hefur sagt mér að ég myndi falla vel inn í ítalska boltanum og ég held að það gæti þroskað mig sem leikmann," sagði Podolski.

Sagt er að Manchester City, Tottenham og Hamburg séu öll heit fyrir að fá þýska landsliðsmanninn í sínar raðir - jafnvel nú í janúar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×