Fótbolti

Þóra best í Noregi og á leið til Svíþjóðar

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Þóra B. Helgadóttir.
Þóra B. Helgadóttir.

Helgin var heldur betur viðburðarrík hjá landsliðsmarkverðinum Þóru B. Helgadóttur. Þóra var í gærkvöldi valinn besti leikmaður norsku úrvalsdeildarinnar og svo greinir Morgunblaðið frá því í dag að hún sé búin að semja við sænska félagið Ldb Malmö til þriggja ára.

Malmö er eitt sterkasta lið Svíþjóðar en með liðinu leikur annar íslenskur landsliðsmaður, Dóra Stefánsdóttir.

Þóra hefur áður leikið nokkra leiki með félaginu en systir hennar, Ásthildur, lék einnig með Malmö á sínum tíma.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×