Sport

ÍM25: Sigrún Brá stórbætti eigið Íslandsmet

Ómar Þorgeirsson skrifar
Sigrún Brá Sverrisdóttir.
Sigrún Brá Sverrisdóttir. Mynd/vilhelm

Sigrún Brá Sverrisdóttir úr Ægi var að bæta við enn einu Íslandsmetinu í sarpinn á Íslandsmeistaramótinu í sundi í 25 metra laug í Laugardalslaug.

Sigrún Brá setti nýtt og glæsilegt Íslandsmet í 400 metra skriðsundi þegar hún synti á tímanum 4:15,17 en það er bæting á gamla meti Sigrúnar Bráar um tæpar tvær sekúndur.

Sigrún Brá átti í harðri baráttu við Ingu Elínu Cryer, ÍA, sem synti nálægt gamla metinu og setti stúlknamet.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×