Fótbolti

Ótrúleg byrjun hjá Gylfa með Hoffenheim

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Gylfi fagnar hér marki sínu í dag.
Gylfi fagnar hér marki sínu í dag.

Gylfi Þór Sigurðsson var hetja Hoffenheim í dag er hann kom af bekknum og fór beint í það að skora jöfnunarmark leiksins gegn Kaiserslautern.

Gylfi skoraði seinna mark liðsins í leiknum og bjargaði stigi fyrir Hoffenheim. Lokatölur leiksins 2-2.

Gylfi Þór hafði aðeins verið á vellinum í nokkrar sekúndur er hann jafnaði leikinn fyrir Hoffenheim á 77. mínútu. Ótrúleg innkoma hjá Gylfa.

Mainz komst á toppinn í dag en Hoffenheim er í öðru sæti deildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×