Fótbolti

Risatilboð Real Madrid í Schweinsteiger?

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Bastian Schweinsteiger.
Bastian Schweinsteiger. Nordic Photos / Getty Images

Þýskir fjölmiðlar fullyrtu í morgun að Real Madrid hefði lagt fram tilboð upp á 50 milljónir evra í þýska landsliðsmanninn Bastian Schweinsteiger hjá Bayern München.

Bayern mun ekki hafa svarað tilboðinu enn en það þykir þó ólíklegt að félagið sé reiðubúið að selja Schweinsteiger.

Jose Mourinho tók við Real Madrid í sumar og fékk á dögunum framherjann Angel di Maria frá Benfica.

Leikmenn eins og Steven Gerrard og Javi Martinez hafa einnig verið orðaðir við félagið.

Schweinsteiger er samningsbundinn Bayern München í tvö ár til viðbótar. Hann hefur einnig verið orðaður við Chelsea í sumar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×