Húshitun mun ódýrari á Íslandi en á Norðurlöndunum 20. desember 2010 14:03 Ef miðað er við meðaltals orkuþörf fyrir 135 fermetra einbýlishús í Reykjavík greiðir slíkt heimili rúmlega 85 þúsund krónur á ári fyrir húshitun og heitt kranavatn.
Íslendingar búa að miklum mun ódýrari húshitun en nágrannar okkar á hinum Norðurlöndunum. Ef miðað er við meðaltals orkuþörf fyrir 135 fermetra einbýlishús í Reykjavík greiðir slíkt heimili rúmlega 85 þúsund krónur á ári fyrir húshitun og heitt kranavatn. Í höfuðborgum hinna Norðurlandanna væri reikningurinn fyrir sömu orkunotkun á bilinu 260 til 530 þúsund krónur, eða 306-623% hærri en í Reykjavík. Þetta er niðurstaða útreikninga sem Samorka, samtök orku- og veitufyrirtækja, hefur birt á vef sínum. Í samanburðinum er miðað við gjaldskrá Orkuveitu Reykjavíkur, sem sér meirihluta landsmanna fyrir heitu vatni. Verðið er sambærilegt hjá öðrum jarðhitaveitum hérlendis, en alls eru um 90% húsa á Íslandi hituð með jarðhita. Þorri þeirra 10% húsa sem ekki hafa aðgang að jarðhita nota rafkyndingu sem alla jafna er dýrari, en nýtur þó niðurgreiðslna og er eftir sem áður mun ódýrari en gengur og gerist í samanburðarlöndum. Viðmiðun samanburðarins fyrir hin Norðurlöndin eru gjaldskrár stærstu hitaveitna eða orkudreifingarfyrirtækja í höfuðborgum þeirra, það er Helsinki Energi, Hafslund í Osló, AB Fortum í Stokkhólmi og Københavns Energi. Miðað er við miðgengi Seðlabanka Íslands 16. desember 2010. Hér er sem fyrr segir miðað við meðaltals orkuþörf fyrir upphitun og heitt kranavatn í 135 fermetra einbýlishúsi í Reykjavík, eða 32.000 kWst ársnotkun. Öll verð í samanburðinum eru með virðisaukaskatti og öðrum gjöldum. Sjá umfjöllun á vef Samorku.
Tengdar fréttir Raforkuverð í Danmörku nær þrjátíufalt hærra en hér Raforkuverð til danskra heimila muna fara upp í allt að 15 kr. danskar, eða rúmlega 300 kr., á kílówattstundina milli klukkan fimm og sjö síðdegis í dag. Þetta er nær þrjátíufalt það verð sem íslensk heimili borga fyrir raforkuna í dag en verðið hérlendis er 10,6 kr. á kílówattstundina. 7. desember 2010 10:58 Mest lesið Sé líklega met að vera hafnað af flokki sínum tvisvar í sama mánuði Innlent Húsnæði Stuðla ráði ekki við málaflokkinn og úrbætur gengið hægt Innlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Fimm þingmenn Sjálfstæðisflokk á útleið Innlent Segist ekki hafa verið beitt þrýstingi Innlent „Ég lagði allt undir“ Innlent Fjallið hafi verið hátt og ekki tekist að klífa það Innlent „Hann tók algjörlega völdin yfir lífi mínu“ Innlent Þau skipa framboðslista Sjálfstæðismanna í Norðausturkjördæmi Innlent Þau skipa framboðslista Sjálfstæðismanna í Norðvesturkjördæmi Innlent Fleiri fréttir Opinn en mannlaus veitingastaður Fimm þingmenn Sjálfstæðisflokk á útleið Húsnæði Stuðla ráði ekki við málaflokkinn og úrbætur gengið hægt Sé líklega met að vera hafnað af flokki sínum tvisvar í sama mánuði Segist ekki hafa verið beitt þrýstingi Þau skipa framboðslista Sjálfstæðismanna í Norðausturkjördæmi Fjallið hafi verið hátt og ekki tekist að klífa það „Ég lagði allt undir“ Ásmundur og Ólöf ræða stöðuna á Stuðlum og framboðslistar Sjálfstæðisflokksins Þau skipa framboðslista Sjálfstæðismanna í Norðvesturkjördæmi Þau taka þátt í prófkjöri Pírata Bryndís Haraldsdóttir tekur þriðja sætið Samþykktu framboðslista Sjálfstæðismanna í Suðurkjördæmi Græningjar vilja fara fram í öllum kjördæmum Jens í fyrsta og Njáll Trausti í öðru Bjarkey gefur ekki kost á sér Þórdís Kolbrún bar sigur úr býtum í Kraganum Björn hafði betur gegn Teiti Sanna leiðir lista Sósíalistaflokks í Reykjavík suður Ingveldur skákaði tveimur sitjandi þingmönnum Guðrún oddviti og Vilhjálmur í öðru sæti í Suðurkjördæmi Miðbær með skautasvelli byggður í Þorlákshöfn Teitur dregur oddvitaframboðið til baka Flutningurinn góður fyrir Framsókn en slæmur fyrir Sjálfstæðisflokk Biðla til fólks að sýna virðingu í nýopnaðri Grindavík Gerðu allt klárt fyrir Stuðlahópinn á örfáum klukkustundum Úrslitastund í troðfullri Valhöll Sverrir Bergmann sækist eftir 3. sæti í Suðurkjördæmi Útiloka ekki samstarf en segja málefnin skipta mestu máli Spáir því að Bjarni gangi til liðs við Miðflokkinn Sjá meira
Raforkuverð í Danmörku nær þrjátíufalt hærra en hér Raforkuverð til danskra heimila muna fara upp í allt að 15 kr. danskar, eða rúmlega 300 kr., á kílówattstundina milli klukkan fimm og sjö síðdegis í dag. Þetta er nær þrjátíufalt það verð sem íslensk heimili borga fyrir raforkuna í dag en verðið hérlendis er 10,6 kr. á kílówattstundina. 7. desember 2010 10:58