Innlent

Meistaragráða felld úr gildi vegna ritstuldar

Ágúst Einarsson.
Ágúst Einarsson. MYND/Haraldur

Meistaragráða nemanda sem útskrifaðist með lögfræðipróf frá Háskólanum á Bifröst sumarið 2008 hefur verið felld úr gildi þar sem nemandinn varð uppvís að ritstuldi í lokaritgerð.

Ágúst Einarsson, rektor Háskólans á Bifröst, segir að vandlega hafi verið farið yfir málið, enda ritstuldur litinn afar alvarlegum augum innan háskólans.

Sérfræðingar skólans og sérfræðingur í öðrum íslenskum háskóla gerðu úttekt á umræddri ritgerð og þeim ritum sem hún þótti líkjast. Niðurstaðan var að óumdeilanlega væri um ritstuld að ræða.

„Við tökum hart á þessu máli. Háskólinn er búinn að endurkalla einkunn nemandans fyrir þessa meistararitgerð. Þar með fellur meistaragráðan úr gildi," segir Ágúst. „Ritstuldarmál eru farin að verða algengari í háskólum, bæði hér á landi og erlendis, með aukinni tækni."

Þar sem nokkuð er liðið frá því að nemandinn útskrifaðist er hann ekki lengur nemandi við skólann, og fær þar af leiðandi að óbreyttu ekki að skila nýrri ritgerð. Ágúst segir að berist skólanum erindi frá nemandanum vegna málsins verði það skoðað, og vill ekki tjá sig um hvort honum verði heimilað að sækja um skólavist að nýju og skila nýrri ritgerð.

Ágúst segir það persónulegt áfall fyrir nemandann að verða uppvís að ritstuldi, en vill ekki leggja mat á hvaða áhrif það mun hafa fyrir feril lögfræðings að vera með slíkt á bakinu.

Nemandinn hefur samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins ávallt neitað því að hafa stundað ritstuld. Ágúst segir að nemandinn hafi haft tækifæri til að koma sínum sjónarmiðum á framfæri á öllum stigum málsins, en niðurstaða háskólans sé skýr. brjann@frettabladid.is






Tengdar fréttir

Segist ekki hafa stundað ritstuld

„Ég hef ekki brotið neitt af mér,“ segir Jón Halldór Guðmundsson. Meistaragráða hans í lögfræði hefur nú verið felld úr gildi vegna ritstuldar. Hann segist vera að skoða málið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×