Innlent

Streituvekjandi að eiga barn með ADHD

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Það veldur streitu á heimilinu að eiga barn með ADHD. Þessi mynd er úr safni.
Það veldur streitu á heimilinu að eiga barn með ADHD. Þessi mynd er úr safni.
Vísbendingar eru um að foreldrar sem eiga barn sem glímir við athyglisbrest með ofvirkni, eða ADHD, virðast frekar upplifa streitu og álag í tengslum við fjölskyldu sína en foreldrar barna sem ekki eru með ADHD og virðast almennt líða verr í foreldrahlutverkinu. Þetta sýna niðurstöður nýrrar rannsóknar sem þær Sigrún Arnardóttir og Z. Gabríela Sigurðardóttir gerðu og birtist í nýjasta hefti Sálfræðiritsins sem kom út fyrir helgi.

Niðurstöður rannsóknarinnar benda líka til þess að foreldrar barna með ADHD virðast einnig hafa neikvæðara viðhorf til fjölskyldu sinnar og glíma frekar við geðrænar raskanir af einhverju tagi en foreldrar barna sem ekki eru með ADHD. Þeir telja sig jafnframt vera undir meira álagi í starfi sínu og verða fyrir meiri truflun við starf sitt en foreldrar annarra barna og er streitan rakin til veikinda barnsins.



Minni tími fyrir makann


Rannsakendur segja að niðurstöður bendi til þess að mikill munur virðist vera á uppeldi og umönnun barna með ADHD samanborið við önnur börn. Álag og streita virðist einkenna uppeldi þessara barna að miklu leyti. Þetta hafi áhrif á marga þætti sem varða lífsgæði foreldra þeirra. Líklega sé um marga samverkandi þætti að ræða sem valdi því að foreldrar barna með ADHD búi við lakari lífsgæði og verri líðan. Til að mynda að meiri orka fari í daglegt amstur hjá þeim samanborið við aðra foreldra og þeir séu almennt undir miklu álagi. Það geti leitt til þess að þeir hafi þá minni tíma aflögu til að efla samband sitt við maka og jafnframt minni tíma fyrir systkini barnsins með ADHD, sem auki þá líkur á samskiptaerfiðleikum þeirra á milli og neikvæðu viðhorfi til fjölskyldunnar.

Einnig benda niðurstöður rannsóknarinnar til þess að foreldrar barna með ADHD hafi áhyggjur af börnum sínum sem tengjast framtíð þeirra og hafi mun meiri áhyggjur en foreldrar barna sem eru ekki með ADHD. Rannsakendur segja að í ljósi þess hve alvarlegar afleiðingar hegðun ofvirkra barna geti haft, hversu tíðar fylgiraskanir geti verið og erfiðleikar í kjölfar þeirra miklir, séu áhyggjur foreldra vel skiljanlegar.



Þyrfti víðtækari rannsókn


Rannsóknin var gerð á meðal foreldra sem aðild eiga að ADHD samtökunum og fengu þau senda spurningalista árið 2006. Flestir, eða um 80% þeirra sem tóku þátt í rannsókninni, voru mæður. Alls tóku 281 einstaklingur þátt í rannsókninni. Rannsakendur segja það ágalla á rannsókninni að hún einskorðist við félaga í samtökunum. Ekki sé vitað hvort svör foreldra barna með ADHD sem ekki eru meðlimir í samtökunum yrðu sambærileg þeim sem eru félagar nú þegar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×