Fótbolti

Leikmenn Atlético Madrid með hugann við Liverpool-leikinn

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Diego Forlan gat ekki leynt vonbrigðum sínum í kvöld.
Diego Forlan gat ekki leynt vonbrigðum sínum í kvöld. Mynd/AFP
Það mætti halda að leikmenn Atlético Madrid séu með allan hugann við leikina á móti Liverpool í undanúrslitum Evrópudeildarinnar því liðið tapaði 1-2 á heimavelli í kvöld á móti botnliði Xerez.

Fyrri undanúrslitaleikur Atlético Madrid og Liverpool fer fram á Vicente Calderón vellinum 22. apríl en seinni leikurinn er síðan á Anfield viku síðar.

Emiliano Armenteros skoraði sigurmark Xerez á 72. mínútu leiksins. Mario Bermejo hafði komið Xerez yfir á 9. mínútu en Diego Forlan jafnaði metin aðeins þremur mínútum síðar.

Þetta var aðeins sjötti sigur Xerez-liðsins á tímabilinu en liðið er áfram í neðsta sætinu enn sex stigum frá öruggu sæti.

Atlético Madrid er í 10. sætinu en er komið í undanúrslit Evrópudeildarinnar og í úrslitaleikinn í spænsku bikarkeppninnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×