Sport

Maður lést á heimavelli Chicago Bears

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Maðurinn féll ofan af svölunum þar sem súlurnar eru og ofan á þakið á geymsluhúsi þar fyrir neðan.
Maðurinn féll ofan af svölunum þar sem súlurnar eru og ofan á þakið á geymsluhúsi þar fyrir neðan.

Maður lést á sunnudag eftir hátt fall á heimavelli NFL-liðsins Chicago Bears. Sá völlur heitir Soldier Field. Misvísandi upplýsingar komu frá vitnum og í fyrstu var ekki vitað hvort hann hefði framið sjálfsmorð eða um slys hefði verið að ræða.

Nú hefur verið úrskurðað að atvikið hafi verið slys.

"Þetta var hörmulegt slys," sagði talsmaður Bears en þetta er í fyrsta skipti sem einhver deyr á vellinum síðan honum var breytt árið 2003.

Maðurinn sem lést var mikill aðdáandi Bears og átti það til að umturna stofunni heima hjá sér svo hún líktist meira Soldier Field.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×