Fótbolti

Ribery skuldar FC Bayern

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Uli Höness, forseti FC Bayern, segir að Frakkinn Franck Ribery skuldi félaginu gott tímabil.

"Franck skuldar okkur og hann veit það best sjálfur," sagði Höness sem er ekki vanur að skafa utan af hlutunum.

"Félagið hefur alltaf staðið 100 prósent á bak við leikmanninn. Franck veit að sá stuðningur var ekki sjálfgefinn miðað við vandræðin sem hann lenti í. Hann þarf að vera sérstaklega metnaðarfullur í vetur. Ég heyri að hann sé að æfa mjög vel og það er góðs viti."

Ribery tekur undir þessi orð forsetans.

"Ég hef fengið mikið frá fólkinu hérna. Hér hafa allir stórt hjarta. Ég veit ég skulda þessu fólki og ég mun finna mitt besta form," sagði leikmaðurinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×