Innlent

Unglingur handtekinn fyrir að stela upplýsingum um Eið Smára

Eiður Smári fórnarlamb meints tölvuþrjóts.
Eiður Smári fórnarlamb meints tölvuþrjóts.

Karlmaður á tvítugsaldri var handtekinn og yfirheyrður í síðustu viku vegna gruns um að hafa stolið trúnaðargögnum frá lögfræðingi Karls Wernessonar, eiganda Milestone ehf., og Eiðs Smára Guðjohnsen. Pilturinn á að hafa selt þær fjölmiðlum samkvæmt heimildum Vísis. Yfirlögregluþjónninn Friðrik Smári Björgvinsson staðfestir að mál af þessum toga sé til rannsóknar hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.

Ekki er ljóst hvernig pilturinn, sem er sautján ára gamall samkvæmt heimildum Vísis, nálgaðist gögnin. Hann er hinsvegar grunaður um að hafa farið í leyfisleysi inni í tölvu lögfræðingsins Gunnars Gunnarssonar og afritað þar talsvert af gögnum.

Gögnin sem um ræðir eru meðal annars um Sjóvá og eignarhaldsfélögin Vafning, Þátt, Svartháf og Skeggi ehf. Þá má einnig finna skammstöfunina ESG en leiða má líkur að því að það sé skammstöfun sem stendur fyrir fótboltamanninn Eið Smára Guðjohnsen en ítarlega umfjöllun var um hann og fjármál hans í DV fyrir nokkru.

Eiður hefur kært ritstjóra DV og blaðamann þess fyrir umfjöllunina.

Svo er einnig mappa sem heitir einfaldlega Steingrímur á meðal gagnanna sem á að hafa verið stolið. Sennilega varðar það Steingrím Wernesson hjá Milestone en hann komst síðast í kastljósið þegar DV sagði frá yfirheyrslum yfir honum hjá sérstökum saksóknara.

Þá má einnig finna upplýsingar um Milestone ehf. og svo möppu sem ber heitið Flugskýlið. Athygli vekur að meðal gagnanna er myndband merkt Baugi en því er ekki lýst frekar.

Yfirlögregluþjónn staðfestir að málið sé til rannsóknar en það er á frumstigum. Ekki fengust nánari upplýsingar um málið hjá lögreglunni.

Ekki náðist í eiganda gagnanna, Gunnar Gunnarsson, þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×