Fótbolti

Dzeko dreymir enn um Juventus

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Edin Dzeko fagnar marki í leik með Wolfsburg.
Edin Dzeko fagnar marki í leik með Wolfsburg. Nordic Photos / Getty Images
Sóknarmaðurinn Edin Dzeko segist harma það að félagaskipti hans frá Wolfsburg til Juventus á Ítalíu hafi ekki gengið í gegn eins og hann vonaðist til.

Dzeko hefur lengi verið orðaður við Juventus og munu félögin hafa ræðst við í sumar um möguleg kaup Juventus á kappanum.

„Ég get ekki leynt því að mér finnst leiðinlegt að ég fékk ekki að fara til Juventus. Allt til loka taldi ég líklegt að Juventus og Wolfsburg myndu komast að samkomulagi, sérstaklega þegar félögin byrjuðu líka að tala um Diego. En því miður þá fór þetta ekki eins og ég vildi," er haft eftir Dzeko í ítölskum fjölmiðlum í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×