Innlent

Sérstakur saksóknari: Enginn vill leka upplýsingum

Ólafur Þór Hauksson segir starfsfólk embættisins vita að það eyðileggur fyrri sér með því að leka upplýsingum um starfið
Ólafur Þór Hauksson segir starfsfólk embættisins vita að það eyðileggur fyrri sér með því að leka upplýsingum um starfið
Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari, er líklega eini Íslendingurinn sem hefur það í starfstitli að vera sérstakur. Spurður af blaðamanni Skessuhorns hvort hann sé í raun svolítið sérstakur segir Ólafur: „Lögin segja að svo sé en ég held að þess utan sé ég nú frekar venjulegur."

Stefnt er að því að þessu verkefni hans verði lokið árið 2014 og því verði hann ekki sérstakur eftir það.

Ólafur er í stóru viðtali í nýjasta tölublaði Skessuhorns þar sem hann ræðir meðal annars mikilvægi þess að starfsmenn embættis sérstaks saksóknara virði trúnað við starfið.

„Það er líka þannig að þeir sem starfa í þessu kerfi átta sig mjög snemma á því að það þjónar ekki rannsóknarhagsmunum að upplýsingar fari frá okkur án þess að formleg ákvörðun sé tekin um það. Starfsmenn sjá að með því eyðileggja þeir fyir því sem framundan er í þeirra vinnu. Þannig hefur enginn sem starfar í þessu umhverfi áhuga á að leka neinu," segir Ólafur.

Athygli vakti þegar embættið gerði nýverið átján húsleitir á um einum sólarhring. Að verkefninu komu um sjötíu manns, ekki aðeins frá embætti sérstaks saksóknara heldur einnig frá efnahagsbrotadeild lögreglu, sérsveitinni og Fjármálaeftirlitinu. Ekkert spurðist út um þessar húsleitir fyrr en þær voru að mestu afstaðnar. Blaðamaður Skesshorns spyr hvernig hafi verið hægt að fá allan þennan fjölda fólks til að steinþegja yfir því sem framundan var.

„Þú sérð að í þessu tilviki tókst það mjög vel. Við byrjuðum á þessari aðgerð mjög snemma morguns en fjölmiðlarnir voru ekki búnir að komast að því fyrr en um hádegið, þannig að það var ekki svo mikið sem lak þann daginn, sem betur fer," segir Ólafur.

Tengill:

Vefur Skessuhorns




Fleiri fréttir

Sjá meira


×