Innlent

Oftast fjallað um og rætt við Steingrím

Fjölmiðlavænn Steingrímur.
Fjölmiðlavænn Steingrímur.

Það var oftast fjallað um Steingrím J. Sigfússon og rætt við hann í fjölmiðlum samkvæmt ráðherrapúlsi Cretidinfo sem tók saman fréttir og umfjöllunarefni þeirra að hluta til árið 2010.

Þar kemur í ljós að rætt var við Steingrím 583 sinnum yfir árið enda miið mætt á honum. Þá var hann einnig nefndur langoftast í fréttum óháð samhengi eða formi.

Virkni og sýnileiki ráðherra er eingöngu mælt úr ljósvakafréttum því dagblaða- og netmiðlaefni getur oftar fjallað um mál þar sem aðili er nefndur á nafn án þess að vera tengdur sjálfu innihaldi fréttarinnar með beinum hætti.

Sem fyrr mælast formenn ríkistjórnarflokkanna mest áberandi, rétt eins og hefur verið síðustu árin. Þó er það frábrugðið nú miðað við fyrri ríkistjórnir að það er ekki forsætisráðherra sem er mest áberandi ráðherrann. Hún er í öðru sæti.

Félags- og heilbrigðisráðherrann, Guðbjartur Hannesson er neðarlega á lista og skýrist það að einhverju leyti af því hversu seint hann tók við embætti.

Fjarvera Ögmundar Jónassonar frá ráðherrastóli virðist þó síður en svo hafa haft áhrif á hans sýnileika í fréttum því hann er í fimmta sæti á eftir Össuri Skarphéðinssyni utanríkisráðherra.

Þegar skoðað er hversu oft hver ráðherra var nefndur í fréttum breytist listinn lítilega. Þannig er Árni Páll Árnason hlutfallslega oftar viðmælandi í fréttum en viðfangsefni þeirra. Sá ráðherra sem mestan sýnileika hafði á árinu 2010 er þó óumdeilt Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra sem bæði er oftast viðfangsefni fjölmiðla og viðmælandi þeirra.

Hér fyrir neðan er listi yfir ráðherra þar sem þeir voru viðmælendur.

Steingrímur J. Sigfússon

Jóhanna Sigurðardóttir

Árni Páll Árnason

Össur Skarphéðinsson

Ögmundur Jónasson

Jón Bjarnason

Katrín Júlíusdóttir

Guðbjartur Hannesson

Katrín Jakobsdóttir

Svandís Svavarsdóttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×