Innlent

Í gæslu­varð­hald vegna al­var­legrar líkams­á­rásar á Vopna­firði

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Maðurinn er grunaður um alvarlega líkamsárás gegn fyrrum sambýliskonu sinni.
Maðurinn er grunaður um alvarlega líkamsárás gegn fyrrum sambýliskonu sinni. Vísir/Vilhelm

Héraðsdómur Austurlands hefur fallist á kröfu lögreglustjórans á Austurlandi um gæsluvarðhald yfir sakborningi sem grunaður er um líkamsárás gegn fyrrum sambýliskonu á Vopnafirði á miðvikufag.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Austurlandi. Þar segir að krafa hafi verið gerð um gæsluvarðhald á grunni sakamálalaga og miðað við fyrirliggjandi málsgögn hafi verið fallist á gæsluvarðhald til 4. nóvember næstkomandi.

Maðurinn var var handtekinn á Vopnafirði síðastliðinn miðvikudag grunaður um alvarlega líkamsárás gegn fyrrum sambýliskonu.

Þá segir í tilkynningu lögreglunnar að rannsókn málsins hafi staðið óslitið síðan. Skýrslur hafa verið teknar af sakborningi, vitnum og brotaþola og húsleit gerð á heimili sakbornings en grunur lék á að skotvopn væru geymd. Engin slík vopn fundust.

Í dag var greint frá því að ákvörðun hefði verið tekin um nálgunarbann og hún birt sakborningi.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×