Fótbolti

Ribery verður klár eftir helgi

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Það styttist loksins í það að Frakkinn Franck Ribery spili aftur með FC Bayern. Það er búist við honum á fullri ferð í næstu viku en hann er byrjaður að iðka léttar æfingar.

Bjartsýnustu menn vonuðust eftir því að hann gæti spilað um helgina en af því verður ekki.

"Við verðum að sjá hvernig hann bregst við æfingaálagi áður en við látum hann spila," sagði Louis Van Gaal, þjálfari Bayern.

Ribery hefur verið frá síðustu sex vikur. Hann náði að spila fimm leiki í deildinni áður en hann meiddist.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×