Evrópusambandið flengir Grikki Óli Tynes skrifar 17. febrúar 2010 12:14
Evrópusambandið hefur sýnt vanþóknun sína og mátt sinn með því að svipta Grikkland atkvæðisrétti á fundi sem haldinn verður í næsta mánuði. Það er að vísu aðeins táknrænn gjörningur sem hefur svosem enga praktiska þýðingu. Fréttaskýrendur segja hinsvegar að niðurlægingin sé skelfileg. Viðskiptaritstjóri breska blaðsins Daily Telegraph segir til dæmis að þetta séu vatnaskil og gríðarlegur missir sjálfstæðis. Evrópusambandið segir að Grikkir verði að verða við kröfum um niðurskurð og skattahækkanir fyrir sextánda næsta mánaðar, eða missa vald yfir eigin skattheimtu og útgjöldum. Ef Grikkir verði ekki við kröfunum muni Evrópusambandið sjálft fyrirskipa niðurskurð samkvæmt hundrað tuttugustu og sjöttu grein Lisbon sáttmálans. Það þýðir í raun að Grikkland verður nánast réttindalaust kotbýli í léni Evrópusambandsins. -Við munum sannarlega ekki sleppa þeim af króknum, hefur Daily Telegraph eftir Josef Proll fjármálaráðherra Austurríkis. Þar bergmálar hann skoðanir starfsbræðra sinna í Norður-Evrópu. Sumir þýskir embættismenn vilja að Grikkland verði með öllu svipt atkvæðisrétti þangað það skreiðist út úr gjaldþroti. Evrópusambandið neitar enn að upplýsa á hvern hátt það gæti hugsanlega komið Grikklandi til aðstoðar. Öll áherslan er á að segja Grikkjum að það sé þeirra eigið mál að koma landinu á réttan kjöl. Í Þýskalandi telja margir það vænlegri kost að reka Grikkland úr evru myntbandalaginu frekar en koma því til hjálpar.
Mest lesið Menn hér á landi verið tengdir hryðjuverkasamtökum Innlent Fjölga rýmum á öryggisgeðdeild og ný stofnun í startholunum Innlent Höfðar mál gegn Íslandi vegna úrgangsmála Innlent Fluttur á slysadeild eftir líkamsárás Innlent Enn stefnt á uppbyggingu þótt talan hundrað sé ekki heilög Innlent Bilun í stofnneti Ljósleiðarans Innlent „Ekki kynnst alvöru málþófi ef þau telja þetta vera mikið málþóf“ Innlent Landlæknir varar við sýningu Adolescence-þáttanna Innlent Adolescence gott samfélagsinnlegg en ekki góð forvörn Innlent Hryssurnar lamdar, ýtt í þær með prikum og þær beittar afli Innlent Fleiri fréttir Kynntu „sterka stjórn sem er fær um aðgerðir“ Kynna nýja ríkisstjórn Þýskalands Hátt í hundrað látnir eftir að þak skemmtistaðar féll Máttu ekki banna fréttamenn AP Erjur í innsta hring Trump fyrir opnum tjöldum Leggur á 104 prósenta tollgjöld á Kína Segjast hafa handsamað Kínverja sem börðust með Rússum Staðfestir veru úkraínskra hermanna í Belgorod Saka Bandaríkin um kúgun og svara fyrir sig Belgískum prins synjað um félagslegar bætur Mikilvægur fundur með Íran framundan Aflýstu blaðamannafundi skyndilega Eini eftirlifandinn lýsir pyntingum og barsmíðum ísraelskra hermanna Kanye stal Ku Klux Klan-myndinni úr Aftenposten Þrjú látin: Heyrðu öskur þegar hringt var í neyðarlínu Ísraelsher viðurkennir rangfærslur eftir birtingu myndefnis Þúsundir mótmæltu Trump á 1.200 mótmælum Vill tollalaus viðskipti við Evrópu „Þetta verður ekki auðvelt“ Handtekinn fyrir að fara á forboðna eyju „En það sem ég var aldrei, var nauðgari“ Tollahækkanir Trump taka gildi TikTok hólpið í bili Rak sex eftir fund með umdeildum samsæringi Russell Brand ákærður fyrir nauðganir og kynferðisbrot Sendi Dönum tóninn Saka Pútín um að draga lappirnar Rannsaka dráp á sjúkraliðum en neita að þeir hafi verið teknir af lífi Forseti Suður-Kóreu leystur frá embætti Rannsaka góðgerðarsamtök sem Harrý stofnaði Sjá meira