Norðmenn sjái um olíuleit fyrir Íslendinga 23. nóvember 2010 12:13 Gunnar Bragi Sveinsson.
Þingflokksformaður framsóknarmanna vill að Íslendingar hætti sjálfir að standa í olíuleit en semji í staðinn við Norðmenn um að annast verkefnið. Olíuleitarútboð Íslendinga á Drekasvæðinu var rætt í fyrirspurnartíma á Alþingi í gær. Gunnar Bragi Sveinsson, þingflokksformaður Framsóknarflokks, kvaðst aldrei hafa skilið afhverju Íslendingar væru að þessu brölti: "Við eigum hreinlega að semja við Norðmenn um að þeir sjái um þetta fyrir okkur. Finnist þarna olía, finnist þarna gas, eða eitthvað vinnanlegt, þá fá þeir hluta af því og við hluta," sagði Gunnar Bragi. Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra taldi ekki rétt að semja við Norðmenn um að þeir sæju um verkefnið fyrir Íslendinga. Hún minnti á að þegar væru til staðar samningar um gagnkvæma hlutdeild hvorrar þjóðar í lögsögu hinnar á Jan Mayen-hryggnum. Þá væri víðtækt samráð milli þjóðanna um olíuleitina þar. Katrín viðurkenndi að Norðmenn væru reynslurík olíuþjóð en Íslendingar algerir nýgræðingar. Þessvegna væri það gott að Íslendingar héldust í hendur við það sem Norðmenn væru að gera þarna. "Og það hjálpar okkur núna, í næsta útboði, tel ég, að Norðmenn séu að setja svona skýran fókus á þetta svæði, vegna þess að það hjálpar okkur í okkar útboði í ágúst næstkomandi, tel ég," sagði Katrín.
Mest lesið Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Fólkið sem stýrir kosningavélum flokkanna Innlent Fjölskyldu sakaði ekki þegar íbúð hennar brann Innlent Segir ummæli Trump um konur móðgun við alla Erlent Uppruni smitsins var hakk frá Kjarnafæði Innlent Búa sig undir meiri rigningu og fleiri flóð á Spáni Erlent Hætta á að Grindavík fari í greiðsluþrot Innlent Um átta þúsund norðurkóreskir hermenn á landamærunum Erlent Greiða bætur vegna tækja sem eyðilögðust eða biluðu í rafmagnsleysinu Innlent Þau skipa framboðslista Lýðræðisflokksins Innlent Fleiri fréttir Staðfest að uppruni E.coli smitsins var hakk frá Kjarnafæði Hætta á að Grindavík fari í greiðsluþrot Fólkið sem stýrir kosningavélum flokkanna Þau skipa framboðslista Lýðræðisflokksins Fjölskyldu sakaði ekki þegar íbúð hennar brann Greiða bætur vegna tækja sem eyðilögðust eða biluðu í rafmagnsleysinu Stefna ríkinu vegna framgöngu lögreglu Flokkshollusta á undanhaldi Þrír fluttir á slysadeild eftir árekstur við Húnaver Mikið vinnuálag til að ná launum upp sem læknir Kristrún hefur beðið Dag afsökunar Steinþór „svo skelfdur eða forviða“ að hann gat ekki gætt sín Tæpur helmingur grunnskóla hefur bannað síma Læknar í verkfall, ellefu framboð og hrekkjavaka í Vesturbæ Máttu ekki selja eldaðan mat Sigurður handtekinn í stærsta kristal-amfetamínmáli sögunnar Sigurjón leiðir í Norðausturkjördæmi „Tifandi tímasprengjur“ á leið út í samfélagið Læknar á leið í verkfall Guðmundur Ingi leiðir og skrifstofustjórinn í öðru Dómur fyrir að nauðga fermingarstúlkum staðfestur Viðsnúningur í manndrápsmáli í Landsrétti Formaður Lýðræðisflokksins sagður misbeita samsæriskenningu „Pabbi minn hefði örugglega orðið reiður“ Fékk slá í höfuðið og málið fer fyrir Hæstarétt Borgarfulltrúi skipar annað sætið í kjördæmi formannsins Risastór ákvörðun íbúa í Þorlákshöfn handan við hornið Hvetja Ísland til að draga enn frekar úr losun Stórt skref stigið í átt að fullgildri aðild Færeyja, Álandseyja og Grænlands Framboðslisti Flokks fólksins í Suðurkjördæmi birtur Sjá meira