Skipti greiða 400 milljónir í sekt Jón Hákon Halldórsson skrifar 9. júlí 2010 13:22 Brynjólfur Bjarnason er forstjóri Skipta. Mynd/ Anton.
Skipti, sem meðal annars rekur Símann og Tæknivörur, hefur fallist á að greiða 400 milljónir í stjórnvaldssekt vegna brota á samkeppnislögum. Þá hafa Skipti fallist á að selja allan eignarhlut sinn í Tæknivörum og skuldbundið sig til að grípa ekki til aðgerða sem raskað geta samkeppni á farsímamarkaði. Í tilkynningu frá Samkeppniseftirlitinu kemur fram að 21. apríl síðastliðinn hafi verið gerð húsleit hjá Skiptum hf. og dótturfélögum þess, Símanum hf. og Tæknivörum ehf. Á grundvelli gagna sem fundust í þeirri leit hafi verið gerð leit hjá Hátækni ehf. og móðurfélagi þess, Olíuverslun Íslands hf., þann 7. maí. Þetta hafi veirð gert vegna gruns um ólögmætt samráð milli Hátækni og Tæknivara á heildsölumarkaði fyrir sölu á farsímum. Eftir húsleitirnar hafi Skipti og Tæknivörur snúið sér til Samkeppniseftirlitsins og óskað, með vísan til samkeppnislaga, eftir því að veita liðsinni við að upplýsa málið. Á þeim grundvelli hafi Samkeppniseftirlitið nýtt heimild samkeppnislaga og gert sátt við Skiptasamstæðuna. Hátækni og Tæknivörur eru helstu keppinautar í innflutningi og heildsölu á farsímum og tengdum búnaði. Hátækni er umboðsaðili fyrir m.a. Nokia síma og Tæknivörur fyrir m.a. Sony Ericsson síma.
Mest lesið Verulega minni verðbólga Viðskipti innlent Að hætta að vera vandræðaleg í nýrri vinnu Atvinnulíf Mun leiða ferskvatnseldi hjá First Water Viðskipti innlent Frá RÚV til Coca-Cola Viðskipti Icelandair hækkað um ríflega fjórðung Viðskipti innlent „Fjárfestar eru bara venjulegt fólk“ Atvinnulíf Ummæli seðlabankastjóra „skringileg“ Viðskipti innlent Sátt Eimskipa við Samkeppniseftirlitið kom Samskipum ekki við Viðskipti innlent Enginn þarf að vera giftur lánunum sínum út lánstímann Samstarf Óvíða sem flugstarfsemi er jafn stór þáttur í efnahagslífi þjóðar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Verulega minni verðbólga Mun leiða ferskvatnseldi hjá First Water Sátt Eimskipa við Samkeppniseftirlitið kom Samskipum ekki við Óvíða sem flugstarfsemi er jafn stór þáttur í efnahagslífi þjóðar Spá enn einum fundinum án breytingar Icelandair hækkað um ríflega fjórðung Munu fljúga til Nashville næsta sumar Rúv tapað nærri hálfum milljarði á árinu Átta sagt upp hjá Arion banka Bein útsending: Ársfundur Orkustofununar á Akureyri Hagnaður félags Björns Braga dróst verulega saman Ummæli seðlabankastjóra „skringileg“ Icelandair fyrsta samstarfsflugfélag bandarísks risa Spá verðbólgu undir fjórum prósentum á næsta ári Fjármálaeftirlitið samþykkir samruna Landsbankans og TM Verður framkvæmdastjóri á hugbúnaðarsviði Origo Geta veitt fyrirtækjum hagstæðari lán Telur vaxtahækkanir viðskiptabankanna brattar Bein útsending: Haustráðstefna Stjórnvísi – Snjöll framtíð Þrálát verðbólga og hægari vöxtur geti skapað áskoranir fyrir fjármálakerfið Hrönn, Viktor og Þórdís til Varðar Ísak Einar til Samtaka atvinnulífsins Andri aðstoðarframkvæmdastjóri Júní Sunna veitir Livio samkeppni í frjósemi Enn eitt félag Quangs gjaldþrota Svekktur en ekki hissa á færri íbúðum í byggingu Færri íbúðir í byggingu en fyrir ári Gengi Icelandair flaug upp á við Vill laða að lágverðsverslun á Krókinn Spá 7,5 prósent stýrivöxtum í lok 2025 Sjá meira