Innlent

Nýtt fangelsi mun rísa á Hólmsheiði

Gert hefur verið ráð fyrir eldhúsum í öllum göngum fangelsisins og í miðjunni verða aðskildir garðar.mynd/alex poulsen arkitekter
Gert hefur verið ráð fyrir eldhúsum í öllum göngum fangelsisins og í miðjunni verða aðskildir garðar.mynd/alex poulsen arkitekter

Útboð til framkvæmda á nýju fangelsi á Hólmsheiði verður tilbúið hjá dómsmálaráðuneytinu innan fárra vikna. Byggingin verður 3.600 fermetrar, með 56 klefum sem skiptast niður á þrjár deildir; kvennadeild, skammtímavistun og gæsluvarðhald.

Ögmundur Jónasson dómsmálaráðherra segir að stefnt sé að því að framkvæmdir geti hafist á fyrri hluta næsta árs.

„Það hefur verið unnið að þessu í nokkurn tíma og málið er í góðum farvegi,“ segir Ögmundur.

Haukur Guðmundsson, skrifstofustjóri í dómsmálaráðuneytinu, segir málið hafa dregist mikið og vinnslu útboðsgagnanna hafa tekið mun lengri tíma en búist var við í fyrstu. Málið sé þó í fullri vinnslu og gögnin ættu að vera tilbúin innan fárra vikna.

„Hugmyndin er sú að reyna að hafa þetta eins hagkvæmt í rekstri og hægt er,“ segir Haukur. Fangelsisbyggingin verður á einni hæð þar sem ein vaktstofa verður í miðjunni. Rýmisskiptingin gerir það að verkum að þótt einungis ein varðstofa sé til staðar sé viðráðanleg fjarlægð út í alla ystu klefana.

„Það verður einungis inngangur í eina álmu, sem gerir það að verkum að á daginn þegar fangelsið er opið þarf bara að manna einn inngang,“ segir Haukur. „Að nóttu til verður ekkert mannað nema þessi eina vaktstofa í miðju fangelsisins.“

Hönnunin gerir það að verkum að möguleikar til aðgreiningar eru miklir og verður byggingunni skipt niður í sjálfstæðar einingar eftir deildum. Haukur segir fangelsisaðstöðu á höfuðborgarsvæðinu hafa verið óviðunandi í nokkurn tíma og því sé brýnt að hefja aðgerðir.

„Fangelsið á Skólavörðustígnum er bókstaflega ónýtt og einingin á Kópavogsbraut er of lítil og óhagkvæm í rekstri,“ segir hann.

Á heimasíðu arkitektanna sem hönnuðu bygginguna, Alex Poulsen Arkitekter, segir að áætlaður kostnaður við framkvæmdirnar verði um 71 milljón danskra króna, eða um einn og hálfur milljarður íslenskra króna. Haukur vill ekki staðfesta hvort sú tala sé nákvæm eins og er.

„Hugmyndin er sú að ríkið geri einhvers konar kaupleigusamning um reksturinn,“ segir hann. „Fyrst og fremst verður um mánaðarleg gjöld að ræða.“sunna@frettabladid.is

Hólmsheiði Fangelsið á Hólmsheiði verður á einni hæð til þess að halda rekstrarkostnaði í algjöru lágmarki.mynd/alex poulsen arkitekter



Fleiri fréttir

Sjá meira


×