Innlent

Tveir fimmtán ára handteknir fyrir líkamsárás

Valur Grettisson skrifar
Lögreglan á Selfossi.
Lögreglan á Selfossi.

Tveir fimmtán ára drengir voru handteknir í gær fyrir líkamsárás í grunnskóla á Selfossi.

Drengirnir fóru inn í grunnskóla á Selfossi, en sjálfir eru þeir í öðrum skóla, og gengu þar í skrokk á nemanda skólans. Samkvæmt yfirlögregluþjóni lögreglunnar á Selfossi, Oddi Árnasyni, slasaðist drengurinn ekki að ráði og stóð árásin stutt yfir.

Lögreglan var snögg á staðinn. Þegar drengirnir flýðu vettvanginn ýttu þeir við kennara sem þeir mættu. Hann féll við og rak höfuðið í vegg og svo gólfið.

Lögreglan handsamaði drengina og voru þeir færðir á lögreglustöðina þar sem skýrsla var tekin af þeim. Málið er unnið í samstarfi við barnaverndaryfirvöld í bænum.

Árásin er enn í rannsókn en drengirnir tveir eru sakhæfir þrátt fyrir að vera á grunnskólaaldri.

Hvorki kennarinn né nemandinn slösuðust að ráði en málið er tekið mjög alvarlega af lögreglunni. Aðspurður svaraði Oddur því til að svona mál væru afar fátíð og mundi hann ekki eftir öðru eins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×