Innlent

Hanna Birna krefst skýringa frá GR

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Hanna Birna Kristjánsdóttir segir nauðsynlegt að borgin fái upplýsingar um það hvernig fjármunum golfklúbbsins hafi verið varið. Mynd/ Pjetur.
Hanna Birna Kristjánsdóttir segir nauðsynlegt að borgin fái upplýsingar um það hvernig fjármunum golfklúbbsins hafi verið varið. Mynd/ Pjetur.
„Þær upplýsingar sem borginni hafa borist kalla á skýringar og eftir þeim skýringum hefur þegar verið óskað, bæði innan borgarkerfisins og við forsvarsmenn Golfklúbbs Reykjavíkur. Reynist það rétt að fjármagni frá Reykjavíkurborg hafi verið ráðstafað með öðrum hætti en fyrri samningar gerðu ráð fyrir þá kallar það að sjálfsögðu á endurskoðun samninga á greiðslum frá Reykjavíkurborg til golfklúbbsins," segir Hanna Birna Kristjánsdóttir borgarstjóri.

Eins og greint var frá í kvöldfréttum Stöðvar 2 fékk borgarráð upplýsingar um að Golfklúbbur Reykjavíkur hefði síðustu þrjú ár þegið 210 milljónir króna frá borginni til ákveðinna framkvæmda en mögulega notað hátt í helming fjárins til að lækka yfirdrátt og aðrar skuldir. Hanna Birna segir að reynist það rétt sé það ekki í samræmi við ákvæði fyrri samninga.

Hanna Birna segir að upplýsingarnar hafi verið sendar strax til innri endurskoðenda og embættismanna hjá Íþrótta- og tómstundaráði. Þeir hafi verið beðnir um að yfirfara málin. „Það er ekki hægt að segja á þessu stigi málsins nákvæmlega hvernig í þessu liggur og eðlilegt að golfklúbburinn fái tækifæri til þess að skýra málið. Ég á von á því að það skýrist á morgun," segir Hanna Birna.

Hanna Birna bendir á að við afgreiðslu borgarstjórnar á málinu á þriðjudaginn hafi borgarstjórn ekki verið að gera annað en að vinna úr samningi við GR sem hafi verið gerður í tíð annars meirihluta. „Og Reykjavíkurborg vildi standa við gerða samninga með eðlilegum hætti. En ég ítreka það að komi það í ljós að GR hefur ekki staðið við sitt með þeim hætti sem ætlast var til með fyrri samningum að þá kallar það auðvitað á endurskoðun," segir Hanna Birna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×