Fótbolti

Van Gaal framlengir við Bayern

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Hollendingurinn Louis Van Gaal hefur bætt einu ári við samning sinn hjá FC Bayern og er nú samningsbundinn félaginu til ársins 2012. Samningar aðstoðarmanna hans voru einnig framlengdir.

Tímasetningin kemur nokkuð á óvart enda tapaði Bayern nýlega fyrir Mainz og er tíu stigum á eftir liðinu í þýsku Bundesligunni.

"Mér finnst gaman að koma á óvart. Það geta allir framlengt eftir sigurleiki. Með þessu sýnir félagið að það styður þjálfarann," sagði Karl-Heinz Rummenigge hjá Bayern.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×