Fótbolti

Ballack spilar ekki meira á þessu ári

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Lánið leikur ekki við þýska miðjumanninn Michael Ballack þessa dagana. Hann missti af HM í sumar vegna meiðsla og var svo nýbyrjaður að spila með Bayer Leverkusen er hann meiddist aftur.

Meiðslin eru aftur mjög slæm og nú er talið afar ólíklegt að hann spili aftur á þessu ári.

Það var slæm tækling frá Sergio Pinto, leikmanni Hannover, sem kom Ballack úr leik að þessu sinni.

"Auðvitað finnst mér leiðinlegt að Ballack sé meiddur. Ég get samt ekki hætt við að tækla manninn bara af því þetta var Ballack," sagði Pinto.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×