Innlent

Leita að vitnum að „hugsanlegu“ umferðaróhappi

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir vitnum að „hugsanlegu umferðaróhappi" eins og það er orðað, sem átti sér stað í júní eða júlí á síðasta ári þar sem bifhjólamaður hafi fallið í götuna á Snorrabraut í Reykjavík á móts við Austurbæ.

Lögregla hefur upplýsingar um að einhver vitni kunni að hafa á þeim tíma gefið sig fram við ökumanninn en sá ekki þegið aðstoð.

Ef einhver kannast við að hafa orðið vitni að þessum atburði er sá hinn sami beðinn um að hafa samband við lögregluna á höfuðborgarsvæðinu í síma 444-1000.














Fleiri fréttir

Sjá meira


×