Innlent

Móðir Tryggva Jóns orðlaus yfir sterkum viðbrögðum

Móðir fjölfatlaðs drengs á Akureyri er orðlaus yfir sterkum viðbrögðum við vandræðum fjölskyldunnar. Bæjaryfirvöld á Akureyri hyggjast breyta reglum svo hægt verði að styðja umbætur á heimili þeirra. Byrjað er að umbylta heimili drengsins.

Byrjað er að umturna heimili Tryggva Jóns, breikka dyraop og breyta baðherbergi svo hann geti farið í bað heima hjá sér. Fjölskyldan er í tveggja vikna læknaferð í höfuðborginni með drenginn og móðir hans segist hafa ákveðið að hrinda framkvæmdum af stað á meðan þrátt fyrir óvissuna. „Ég fór í hlutina eins og maður á kannski ekki fara í þá en ég hef fulla trú á þetta leysist," segir Ásta Freygerður Reynisdóttir, móðir Tryggva Jóns.

Fréttir Stöðvar 2 af vandræðum fjölskyldunnar hafa vakið mikil viðbrögð. Fólk hefur boðist til að hjálpa til við endurbæturnar og Oddur Helgi Halldórsson, formaður bæjarráðs Akureyrar, segir unnið að því að breyta reglum svo hægt verði að koma til móts við fjölskyldur í þeirra stöðu.

„Oddur er flottur og ég hef fulla trú á því hann sé að vinna í þessu máli og treysti því," segir Ásta.

Þingmaður Samfylkingar tók málið upp á Alþingi í dag og sagði kerfið hafa hafnað drengnum. Umönnunarbótakerfið væri gott. „En engu að síður búa mörg þessi börn við annars flokks mannréttindi og verða vegna aðstæðna sinna að flytja að heiman langt fyrir aldur fram" sagði Sigmundur Ernir Rúnarsson, þingmaður Samfylkingar.

Formaður félags- og tryggingamálanefndar viðurkenndi í umræðunum að kerfið gerði ekki ráð fyrir útgjöldum vegna breytinga á heimilum fatlaðra. En því þurfi að breyta og hyggst hún beita sér fyrir því.

Að lokum segir Ásta: „Ég er eiginlega orðlaus. Frábært. Takk allir."


Tengdar fréttir

Fjölmargir vilja hjálpa Tryggva Jóni

Hópur manna og fyrirtækja brást skjótt við fregnum af vandræðum Tryggva Jóns, fimmtán ára drengs í hjólastól á Akureyri, og vilja freista þess að breyta heimili hans þannig að hann geti áfram búið hjá fjölskyldu sinni.

„Þetta getur komið fyrir hvern sem er"

Fimmtán ára drengur sem misst nær alla sjón og heyrn og þarf auk þess að notast við hjólastól vill ekki að fólk tali fyrir sig ef hann hefur ekki beðið um aðstoð að fyrra bragði. „Þetta getur komið fyrir hvern sem er," segir Tryggvi Jón Jónatansson en rætt var við hann og móður hans í þættinum Ísland í dag fyrr í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×