Fótbolti

Tap hjá Göteborg í sænsku úrvalsdeildinni

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Ragnar Sigurðsson.
Ragnar Sigurðsson.

Ragnar Sigurðsson, Theodór Elmar Bjarnason og Hjálmar Jónsson voru allir í liði IFK Göteborg í kvöld sem tapaði fyrir Örebro, 2-1, í sænska boltanum.

Ragnar og Hjálmar léku allan leikinn en Elmari var skipt af velli á 77. mínútu.

Astrit Ajdarevic og Nordin Gerzic skoruðu mörk Örebro en Stefan Selakovic skoraði fyrir Göteborg.

Göteborg siglir lygnan sjó í deildinni í áttunda sæti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×