Fótbolti

Rummenigge: Van Buyten fær að borga fyrir þessi mistök

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Forráðamenn FC Bayern eru þekktir fyrir allt annað en að spara stóru orðin. Það fékk Daniel van Buyten, varnarmaður liðsins, að reyna um helgina.

Bayern vann þá öruggan sigur á Eintracht Frankfurt en það var ekki nóg til þess að kæta Karl-Heinz Rummenigge sem var foxillur eftir leikinn þar sem Van Buyten gaf Frankfurt jöfnunarmark.

"Það er ekki ásættanlegt að menn geri svona mistök. Hann fær að borga fyrir þessi mistök," sagði Rummenigge reiður en Van Buyten var tekinn af velli í leikhléi.

Þjálfarinn hans, Louis van Gaal, var ekki eins reiður út í varnarmanninn.

"Það gera allir mistök, líka Daniel. Lífið heldur áfram. Það er ekkert við þessu að gera," sagði Van Gaal.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×