Skoðun

Elfur Logadóttir: Dýrkeyptar, óþarfar lántökur

Röð rangra ákvarðana Sjálfstæðis-flokks og Framsóknarflokks í Kópavogi á liðnum árum gerir skuldastöðu Kópavogsbæjar líklega 10 milljörðum verri en hún þyrfti að vera. Það þýðir að skera þarf niður sem nemur árlegum rekstrarkostnaði þriggja leikskóla á þessu og næsta ári vegna fjármagnskostnaðar þessara óþörfu skulda.

Þetta stangast á við þá mynd sem meirihlutaflokkarnir hafa reynt að teikna upp af stöðunni. Þeir fullyrða að hækkun skulda bæjarins stafi af gengisfalli krónunnar og verðbólgu; staðan hafi verið svo góð fyrir hrun að Kópavogur geti vel tekist á við efnahagsáfallið. En er það svo?

Ákvörðun Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks um að leysa fasteignabraskara undan uppkaupum á hesthúsum í Glaðheimum kostaði Kópavogsbúa milljarða og leiddi til þess að semja þurfti við eiganda Vatnsenda um eignarnám á landi. Sem leiddi til þess að semja varð við Garðabæ um afléttingu vatnsverndar, sem aftur leiddi til þess að Kópavogsbær varð að tryggja Garðabæ vatn. Þá eru ótaldar ákvarðanir á tíma spennu og hávaxta um ótímabær lóðakaup og lóðaúthlutanir auk óþarfra framkvæmdavið Kópavogshöfn.

Bærinn skuldar nálægt 45 milljörðum þegar allt er talið. Nálægt 1,4 milljónir króna á hvern íbúa. Vegna þessara skulda greiddi Kópavogsbær jafn mikið í fjármagnskostnað árið 2009 og hann varði í félagsþjónustu, menningarmál, æskulýðs- og íþróttamál, umferðar- og samgöngumál og umhverfismál á sama ári.

Fyrir þennan pening hefði mátt halda afgreiðslutíma sundlauganna óbreyttum, sleppa gjaldtöku á eldri borgara í sund, fjölga dvalarrýmum aldraðra, bjóða ókeypis skólamáltíðir bæði í leik- og grunnskólum og hækka fjárhagsstuðning félagsþjónustunnar.

Meirihluti íbúa hefur þörf fyrir breytingar á fjármálastjórn bæjarins. Hagræða þarf í rekstrinum án þess að ógna velferð íbúanna. Gæta þarf aðhalds við ráðstöfun fjármuna en bæta atvinnustig á sama tíma. Það skiptir máli í hvað fjármunum Kópavogsbæjar er varið og frekari lántökur verða því einungis réttlættar að þær hafi ekki áhrif á rekstur bæjarins.

Frambjóðendur Samfylkingarinnar hafa þá þekkingu og reynslu sem þarf til þess að snúa fjármálum Kópavogs til betri vegar og skapa skilyrði fyrir forgangsröðun í þágu velferðar íbúanna.






Skoðun

Sjá meira


×