Innlent

Skrímsladeildir virkjaðar

Mynd/GVA

Þór Saari, þingmaður Hreyfingarinnar, segir að svo virðist sem skrímsladeildir Samfylkingarinnar og Vinstri grænna hafa verið virkjaðar til gera fólkið að baki mótmælunum á Austurvelli tortryggilegt. Þetta sé ein af ástæðunum fyrri dræmri þáttöku á fimmtudaginn. „Ekki einu sinni sjálfstæðismenn töluðu svona um mótmælin í janúar 2009," segir Þór og bætir við að talað hafi verið um mótmælendur af lítilsvirðingu.

Þá segir Þór: „Fyrir okkur í Hreyfingunni hefur verið dapurlegt að sjá hvernig þau hafa líka reynt að tengja Hreyfinguna við fasisma því tillögur okkar um utanþingstjórn eða kosningar eru fyllilega í samræmi við stjórnarskrána og íslenska stjórnskipan og það hefur verið Hreyfingin (áður Borgarahreyfingin) sem hefur mest allra haldið á lofti kröfunni um lýðræðisumbætur."

Pistilinn er hægt að lesa hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×